Kæri viðskiptavinur!
Vinsamlegast kynntu þér vel eftirfarandi áskriftarskilmála. Sú vitneskja fyrirbyggir misskilning og stuðlar að greiðum og góðum samskiptum í framtíðinni. Hikaðu ekki við að hringja í síma 512 5100 eða gjaldfrálst númer 800 6161 ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi áskrift þína. Við veitum þér fúslega allar nánari upplýsingar.
|
1.gr. |
Áskrift að útsendingum 365 miðla ehf. (hér eftir: 365) veitir áskrifanda aðgang að þeim stöðvum 365 sem áskrifandi hefur greitt fyrir hverju sinni. |
|
2.gr. |
Áskriftin er einungis til heimils- og einkanota. Óheimilt er að dreifa áskriftinni með einhverjum þeim hætti að hún nýtist á fleiri stöðum en á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins, t.d. á milli heimila, vinnustaða o.s.frv., og eins er áskrifanda óheimilt að taka upp efni úr dagskrá nema til einkaafnota á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins. |
|
3.gr. |
Áskriftartímabil við upphaf samnings getur varað allt að tólf mánuðum skv. eðli áskriftarsamnings og er óheimilt að segja áskriftarsamningi upp fyrr en að samningstíma liðnum, nema ef um breytingar á samningsskilmálum er að ræða samanber 5. og 12. gr. þessara áskriftarskilsmála. Áskrifandi getur bætt við áskrift hvenær sem er á samningstíma og nýtur þannig stighækkandi vildarkjara gegn 6 mánaða skuldbindingu viðbótarstöðvar. Áskrifandi getur minnkað við sig áskrift á samningstíma en þó að því marki að áskriftin haldist að lágmarki í grunnáskrift þess áskriftarsamnings í 12 mánuði frá bindingu. Viðbótarstöðvar eru uppsegjanlegar að 6 mánuðum liðnum. Segi viðskiptavinur upp grunnáskrift eða viðbótarstöð innan samningstíma þarf hann að greiða upp þann afslátt sem hann hlaut vegna fjölda stöðva. Kjósi áskrifandi að gera breytingar á áskrift, hvort heldur er varðar samsetningu áskriftar, greiðslumáta áskriftargjaldsins eða uppsögn, ber honum að tilkynna slíkar breytingar til 365. Tilkynning þarf að berast með sannanlegum hætti eigi síðar en 11. dag næsta mánaðar á undan þeim mánuði sem breytingunum er ætlað að taka gildi. |
|
4.gr. |
Eftir gildistíma áskriftarsamnings framlengist hann sjálkrafa um mánuð í senn nema áskrifandi segi upp samningnum með áðurnefndum fyrirvara í síma 512 5100, með tölvupósti á netfangið askrift@365.is eða með öðrum skýrum hætti. |
|
5.gr. |
Áskriftargjald hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrirfram samkvæmt þeim gjaldskrár- og uppgjörsreglum sem eru í gildi á hverjum tíma hjá 365, því gjaldskrá getur tekið breytingum á samningstíma samanber 12. gr. þessara áskriftarskilmála. Gjalddagi áskriftargjalds er fyrsti dagur hvers mánaðar. |
|
6.gr. |
Hætti áskrifandi að greiða áskrift áður en samningstíma lýkur mun samningurinn fara í innheimtu með tilheyrandi kostnaði. |
|
7.gr. |
Athugasemdir skulu gerðar við útgefna reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga, ella telst reikningur samþykktur. Hafi athugasemdir borist eftir eindaga og atvik réttlæta með ótvíræðum hætti tafir á því að athugasemdir bárust, skal eins og frekast er unnt taka afstöðu til þeirra athugasemda. |
|
8.gr. |
Áskriftargjald er skuldfært beint á greiðslukort eða af bankareikningi greiðanda (boð- eða beingreiðslur) og er þá enginn greiðsluseðill gefinn út og ekkert seðilgjald innheimt. Óski áskrifandi eftir að fá sendan greiðsluseðil skal hann fara fram á það með skýrum hætti, en hafa ber í huga að þá er innheimt seðilgjald. |
|
9.gr. |
365 áskilur sér allan rétt til að breyta fyrirvaralaust auglýstri dagskrá miðla sinna og fjölda þeirra rása sem dagskráin er send út á hverju sinni. 365 áskilur sér einnig allan rétt til að breyta fyrirvaralaust samsetningum og fjölda stöðva í hverjum áskriftarpakka, en þó innan sanngirnismarka hvers áskriftarsamnings. |
|
10.gr. |
365 er einungis efnisveita sjónvarpsefnis áskriftar. Aðrir aðilar, eða svokallaðir dreifingaraðilar, bera ábyrgð á áskriftarbúnaðinum, og lýtur áskriftarbúnaðurinn þeirra skilmálum. 365 ábyrgist því á engan hátt útsendingar- eða móttökuskilyrði miðla sinna eða bera ábyrgð á málum tengdum myndlyklum eða öðrum atriðum tengdum dreifingu sjónvarpsefnis. |
|
11.gr. |
Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum, til dæmis, en takmarkast ekki við, að tilraun sé gerð til að komast hjá gjaldtöku á óheimilan hátt eða reynt er að koma gjaldskyldu yfir á óskyldan eða ógjaldfæran aðila, er 365 heimilt, án fyrirvara, að loka á áskrift og krefjast greiðslu sem 365 áætlar að af sanngirni bæti fyrir brot áskrifanda og eftir atvikum mun 365 kæra atferlið. |
|
12.gr. |
365 áskilur sér rétt til þess að breyta áskriftarskilmálum þessum, gjaldskrá ofl. Þær breytingar skulu kynntar áskrifendum með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara á vefsíðunni www.stod2.is sem og með öðrum sýnilegum hætti á áskriftarstöðvunum. Þar skal kynnt í hverju breytingarnar felast og eftir atvikum eru þar veittar upplýsingar um rétt áskrifanda til þess að segja upp gildandi áskriftarsamningi vegna breytinganna. |
|
13.gr. |
Rísi ágreiningur um túlkun og skýringu á skilmálum þessum skal leitast við að ná sáttum með heiðarleika og sanngirni að leiðarljósi, en annars má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. |
Áskriftarskilmálar þessir gilda frá 25. maí 2010.