Stöð 2 Vild

Stöð 2 Vild samanstendur af þeim áskrifendum 365 sem eiga það sameiginlegt að vera áskrifendur að Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 2 Sport 2 eða Stöð 2 Fjölvarpi á Digital Íslandi allt árið um kring.

Stöð 2 Vild færir þér ýmsan ávinning.
Vild áskrifendur njóta ekki aðeins úrvalsdagskrár allan ársins hring heldur færir aðild að Stöð 2 Vild klúbbnum, áskrifanda og fjölskyldu hans að auki umtalsverðan ávinning.  Ávinningurinn kemur fram í hinum ýmsu tilboðum á vörum og þjónustu og getur þýtt umtalsverðan sparnað fyrir fjölskylduna.

Stöð 2 Vild áskrifendur Stöðvar 2 fá Stöð 2 Bíó frítt.
Áskrifendur Stöðvar 2 sem jafnframt eru í Stöð 2 Vild fá Stöð 2 Bíó þeim að kostnaðarlausu.  Stöð 2 Bíó sýnir 200 úrvalsmyndir í hverjum mánuði.

Stöð 2 Vild áskrifendur Stöðvar 2 fá Stöð 2+ frítt.
Áskrifendur Stöðvar 2 sem jafnframt eru í Stöð 2 Vild býðst nú aukin þjónusta. Við bjóðum
Stöð 2+ frítt. Stöð 2 + sýnir dagskrá Stöðvar 2 með klukkustundar seinkun.
Ef þú missir af fréttunum eða uppáhaldsþættinum á Stöð 2 nærðu að horfa á efnið klukkutíma seinna á Stöð 2 +.

Hringdu eða gangtu frá áskrift á netinu og þú gengur í Vild.
Þeir sem ekki eru í Stöð 2 Vild en hafa hug á því að tilheyra klúbbnum geta hér á vefnum eða með einu símtali í 512 5100 gert 12 mánaða framvirkan samning.  Samningurinn færir þeim áskrift að Stöð 2 og um leið frían aðgang að Stöð 2 Bíó og Stöð 2 +.  Auk þess að njóta dagskrár Stöðvar 2, Stöð 2 Bíó og Stöð 2 + hlýtur viðkomandi allra þeirra fríðinda sem Stöð 2 Vildar klúbburinn býður uppá hverju sinni. 

Þjónusta til Vild áskrifenda.
Áskrifendur í Stöð 2 Vild fá sérstaka þjónustu sjónvarpsstöðva 365 á mun lægra verði en aðrir áskrifendur. Lykillinn að þessari sérþjónustu er þjónustusíminn þar sem svarað er alla daga frá 9-22. Áskrifandi fær beint samband við þjónustufulltrúa Stöð 2 Vild sem er ljúft að sinna erindi hans og leysa úr vandamálum eftir því sem kostur er.

Tilboð til Stöð 2 Vild áskrifenda.
Stöð 2 Vild áskrifendum eru reglulega boðin Vildar tilboð.  Tilboðin eru auglýst á
stod2.is, í veffréttabréfi Stöð 2 Vildar eða á Stöð 2. 
 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli