Verð
Breytingar á verðskrá Stöðvar 2 og Fjölvarps Þann 5. september nk. tekur gildi breytt verðskrá fyrir Stöð 2 og Fjölvarp Stöðvar 2. Áskriftarverð Stöðvar 2 hækkar um 400 kr. og hækkar verð Stöðvar 2 Fjölvarps frá 300 til 400 kr. á mánuði háð pakka. Ástæður þessara verðhækkana má rekja meðal annars til gengisfalls íslensku krónunnar um rúm 40% á síðastliðnu ári. Þrátt fyrir veika stöðu íslensku krónunnar hefur þó tekist að halda verðhækkunum í lágmarki, m.a. með endursamningum við erlenda birgja. Vildarafsláttur viðskiptavina Stöðvar 2 breytist ekki og nemur áfram frá 5% til 30%. Þeir sem njóta bestu vildarkjara fá því Stöð 2 á 4.893 kr. og Stöð 2 Fjölvarp á 2.373 kr. til 3.773 á mánuði háð pakka. Um 95% áskrifenda Stöðvar 2 njóta vildarkjara